Ég heiti Soffía Bæringsdóttir og er búsett í Reykjavík.
Áhugi minn á fæðingum kveiknaði árið 2005 þegar ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera viðstödd þegar lítill undursamlegur drengur kom í heiminn. Þá breyttist eitthvað innra með mér. Ég vissi að ekki yrði aftur snúið. Undanfarin ár hef ég lifað og hrærst í heimi fæðinga, meðgöngu og sængurlegu og barnauppeldi.
Ég lauk fæðingar-doulunámi frá Childbirth International árið 2009. Ég er stuðningskona Íslensku brjóstagjafasamtakanna og hef setið námskeið um brjóstagjöf á þeirra vegum. Ég er ein stofnenda samtakanna, sé um ásamt fleirum að halda alþjóðlegu brjóstagjafavikuna á Íslandi. Ég byrjaði nýlega að læra til meðgöngumenntara (CBE) og stefni að því að klára námið á þessu ári.
Ég hef frá unga aldri notað ilmkjarnaolíur fyrir mig, fjölskyldu og vini. Ég hef farið á nokkur námskeið og bæti sífellt við vitneskju mína þar. Að auki hef ég í mörg ár notað íslenskar jurtir m.a. til smyrslagerðar. Ég gæti þess vendilega að eiga alltaf heimagert baðsalt og olíur fyrir öll möguleg tækifæri. Nuddáhugi minn byrjaði snemma og ég hef sótt nokkur nuddnámskeið í gegnum tíðina hjá faglærðu fólki.
Þessi áhugamál mín hafa nýst mér vel í starfi mínu sem doula. Ég legg líka mikið uppúr því að bæta stöðugt og sífellt við vitneskju mína. Hver kona og fjölskylda er einstök og því legg ég mig eftir því að mæta hverri fjölskyldu á einstakan hátt. Ég hef óbilandi trú á krafti kvenna og vil gjarnan styrkja konur í að velja fyrir sig og finna sinn innri styrk.
Hlakka til að heyra frá þér.
Endilega hafið samband á soffia@hondihond.net og fáið nánari upplýsingar eða hafið samband í síma 862-4804.
