Þjónusta
Doula starfar fyrir foreldra og styður þá í gegnum einstaka upplifun. Þarfir, óskir og væntingar eru ólíkar frá konu til konu. Þjónusta doulu getur verið samfelld frá upphafi meðgöngu þar til eftir fæðingu barnsins eða einn hittingur. Ótal útfærslur eru í boði.
Endilega hafið samband á soffia@hondihond.net.
Stuðningur doulu er meðal annars fólginn í:
- ótakmörkuðum síma- og vefpóstsaðgangi
- aðstoð við að vinna úr fyrri fæðingarreynslu
- aðstoð við gerð fæðingaráætlunar
- aðgangi að bókum mínum um meðgöngu, fæðingu og brjóstagjöf
- fótanuddi
- öndun og öndunaræfingum
- æfingum í slökun
- yfirferð yfir góðar stöður og stellingar
- skuldbingu um að vera í nágrenninu tveimur vikum fyrir settan dag þar til barnið er komið í heiminn.
- samfelldri viðveru í fæðingu
- aðstoð með brjóstagjöf
- stuðningi eftir fæðingu
- skrifaðri fæðingarsögu
Fyrsta skrefið er að hafa samband. Við finnum tíma til þess að hittast og kynnast aðeins.
Fyrsti hittingur er án allra kvaða, hann er notaður til þess að kynnast, spjalla og sjá hvort áhugi er fyrir nánara samstarfi.
Tek einnig að mér einkatíma í fæðingarundirbúningi.
Endilega hafið samband á soffia@hondihond.net eða í síma 862-4804 og fáið nánari upplýsingar.
Athugið vegna fjölda fyrirspurna get ég líka verið með heimakynningar fyrir hópa t.d. meðgönguhópa, mömmuhópa og saumaklúbba. Kynningin tekur á bilinu 30-60 mínútur. Nánari upplýsingar á soffía@hondihond.net