Feður og doula
Báðir foreldrar hagnast á því að hafa doulu með í gegnum fæðingarferlið. Doula er stuðningur við báða foreldra og kemur aldrei í staðinn fyrir faðir eða tekur yfir hans hlutverk. Þvert á móti getur verðandi faðir einbeitt sér enn betur að móður og ófæddu barni sínu með doulu sér við hlið.
Það er af sem áður var að feður komu lítið sem ekkert að meðgöngu- og fæðingarferlinu. Flestir feður hafa verið virkir þátttakendur í ferlinu alveg frá byrjun. Faðir er frá upphafi aðalstuðningsmanneskja móður og ást hans, hlýja og stuðningur er ómetanlegur. Enda tilfinningatengsl verðandi foreldra einstök og barnsvonin bindur þau órjúfanlegum böndum.
Verðandi faðir er ekki bara stuðningsaðili móður í ferlinu. Hann á von á barni og er þátttakandi sem fulltrúi síns sjálfs, það er faðir barnsins. Verðandi faðir gegnir því í raun tveimur stórum hlutverkum, hann á von á barni og er á svæðinu til þess að taka á móti því og líka til þess að styðja og styrkja móður.
Doula styrkir stöðu föðurs í fæðingunni, léttir pressunni af honum. Hún getur bent honum á leiðir til þess að styðja konu sína líkamlega og hjálpað honum að einbeita sér að fullu að móðurinni. Sumir kjósa frekar að sýna móður stuðning en doula sér þá um að veita móður líkamlegan stuðning t.d. með nuddi.
Doula er á staðnum allan tímann, sé þess óskað, og því getur faðir farið áhyggjulaus og fengið sér að borða eða á klósettið án þess að hafa áhyggjur af því að skilja við konu sína. Fæðingar geta verið langar og krefjandi og því gott að hafa einhvern á staðnum sem er tilbúin að deila þunganum og þekkir til óska og væntinga verðandi foreldra. Rannsóknir sýna að feður eru almennt mjög ánægðir með að hafa doulu, þeir eru afslappaðri og betur undirbúnir. Tengslamyndun gengur betur og samskipti foreldra líka eftir að barn er komið heim.
Doula snýst í kringum verðandi foreldra, sækir vatn og annað sem á þarf að halda. Hún er til staðar ef á þarf að halda en man vel og virðir hve heilög þessi stund er fyrir fjölskylduna.
Auk þessa er alltaf hægt að leita til doulunnar með spurningar og vangaveltur. Hún var á staðnum og deilir reynslunni með foreldrunum og hjálpar þeim að vinna úr fæðingarferlinu.
Heimildir: dona.org og doula.com