Ávinningur af doulu
Ávinningurinn af því að hafa doulu sér við hlið felst ekki síst í því að verðandi foreldrar þekkja douluna, doulan veit væntingar foreldra og vinnur fyrir þau. Stuðningur doulu er samfelldur og á jafningjagrundvelli.
Í það minnsta sextán athuganir hafa verið gerðar til að athuga ávinninginn af því að hafa doulu með í fæðingarferlinu meðal annars í Belgíu, Finnlandi, Suður-Afríku, Bandaríkjunum, Frakklandi og Guatemala. Allar athuganir sýna að konur og verðandi fjölskylda græðir á því að hafa doulu sér við hlið.
Ávinningurinn er meðal annars:
- jákvæðari upplifun af fæðingunni
- styttra fæðingarferli
- minnkuð þörf fyrir deyfilyf
- minni líkur á keisarafæðingu
- minni líkur á fæðingarþunglyndi
- makar eru öruggari með hlutverk sitt
- betri samskipti við maka eftir að barnið er komið heim
- betri tengslamyndun við barn
- meiri líkur á að brjóstagjöf gangi upp
(heimild: The Doula Book: how a Trained Labor Companion Can Help You Have a Shorter, Easier, and Healthier Birth eftir Marshall H Klaus, M.D., John H Kennell, Phyllis H Klaus)