Hvað er doula?

soffia_net1Doula er stuðningsmaður konu fyrir, í og eftir fæðingu og styður þarfir hennar og óskir í tengslum við hana. Doula aðstoðar verðandi fjölskyldu við að undirbúa sig fyrir fæðingu, líkamlega og andlega og fylgir þeim í gegnum þetta einstaka ferli.

Doula er andlegur stuðningsmaður og ber aldrei klíníska ábyrgð. Hún kemur aldrei í stað ljósmóður eða læknis og tekur engar læknisfræðilegar ákvarðanir.

Doula mætir móður og föður á þeirra forsendum, hlúir að þeim tilfinningalega og aðstoðar þau við að undirbúa sig fyrir fæðingu og fylgja eftir áætlunum sínum.

Doula fylgir foreldrum í gegnum allt fæðingarferlið og er með þeim allan tímann á þeirra forsendum. Sama hvort um er að ræða spítalafæðingu eða heimafæðingu, fæðingu með eða án deyfilyfja, fæðingu eða keisara styrkir doula konur og maka þeirra.

Samstarf með doulu er náið og persónulegt og því byggir starf doulu alltaf á trúnaði og trausti.

Orðið doula er grískt og átti við þjón konu, jafnvel þræl. Nýrri merking er stuðningsaðili fæðandi konu. Doula gerir allt sem í sínu valdi stendur til þess að styðja konur / foreldra til þess að fæðingarreynslan verði sem ánægjulegust.